Sveinki er komin í bæinn

Vá hvað þetta lýður allt svo hratt jólin eru bara að fara að koma, ég er ekki alveg að ná því en ég er samt tilbúin eða því semnæst.  
      • Við erum búin að kaupa flest allar gjafirnar
      • Ég er búin að gera tvær teg. af konfekti og viti menn það er bara gott
      • Búin að gera laufabrauð
      • Búin að skreyta
      • Á samt eftir að taka lokaþrif, skrifa jólakort og fara í ærlagar snyrtingar frá toppi til táar ekki slæmt það!!
Ég fíla það ekkert smá að þurfa ekki að standa í prófalestri núna fyrir jólin enda gleymi ég mér alveg í jólaundirbúningnum, ég þarf samt alvega að njóta þess í botn núna því það verður líklega ekki svoleiðs næstu 4 ár!! Ég veit ekki alvega hvernig ég fór að því en ég er búin að tína einni jólagjöfinni sem við ætluðum að gefa, ég er búin að leita og leita á öllum hugsanlegustu stöðum sem ég gæti hafið komið henni fyrir en ég bara finn hana ekki! Ég finn hana sennilega einhvern tíman en ég játa þó að ég á þetta svolítið til að ganga svo vel frá hlutunum að ég finn þá ekki þegar ég þarf  á þeim að halda.

 

United er á toppnum þá er kallin ánægður með lífið og helmingi auðveldari í umgengni :/ og við skulum vona að það haldist sem lengst allaveganna fram yfir jól. Við héldum upp á þetta í dag og keyptum okkur ljósakort í abaco, við stefum á bronzlitinnGlottandi 
Svo er bara að vona að United vinni Hamrana hans Eggerts á sunnudaginn, því hver veit hvernig kejllinn fagnar því!




Kv. Stína fína sem er komin í jólagírinn

14. desember 2006 klukkan 04:52
Kristín Heiða Garðasdóttir
Elín Heiða:) skrifar ...
hehe bara flott á því gella:) græja konfekt og læti.. uss nú er ég öfundsjúk.. bara voða gaman hjá þér á meðan ég svitna yfir skólabókunum...:/ uss uss... En allavega njóttu þess bara kella:) og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.. sé þig kanski á jólaröltinu í bænum eða á djamminu hehe... :) heyrumst:)
15. desember 2006 klukkan 00:20
Alma Kristín skrifar ...
hæhæ skvísa, það er aldeilis... bara að verða búin að öllu, það er ekki að spyrja að dugnaðarheitunum :) mmmm mig langar í konfekt nammi namm, hehe við lisbet erum búnar að vera á leiðinni að gera konfekt í held ég 3 ár.... jeee góðar systurnar :)
Jæja kem norður á morgun, sjáumst vonandi hressar og kátar.

p.s. úffff ég er ekki byrjuð á jólakortunum, verð að drífa í þessu, þú veist að ég býst við korti frá þér snúllan mín hehe ;)
16. desember 2006 klukkan 03:11
þóranna skrifar ...
hahahha var að rekast á bloggið þitt og vissi svo ekki að þú værri með blogg...:)

wn hafðu það gott sé að það er hell langt síðan u bloggaðir... en kanski sérðu þetta einn daginn þá geturu tjakkað bloggið mitt;) hehe
love love... frá litlu frænku;)
25. janúar 2007 klukkan 01:00
Helga Hrönn Ólad skrifar ...
Blessuð
Rakst á síðuna þína á mínum bloggrúnti og ætlaði bara rétt að skilja eftir lítil fótspor;)
Gaman að sjá að það séu fleiri en ég að kafna úr jólafíling og undirbúningi...;)
KVeðja
Helga Hrönn
30. nóvember 2007 klukkan 18:38

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...