Senn koma jólin
Já ég er komin í þónokkuð jólaskap skal ég segja ykkur, ég er búin að gera fullt af ráðstöfunum fyrir jólin Í gær keypti ég súkkulaði jóladagatal og jóla kerti Ég er byrjuð að taka til í skúffum því ég þoli ekki svona óreiðu ég verða að koma skipulagi á skipulagið fyrir jólin, í dag tók ég öll föt sem ég hef geymt og haldi áð ég ætti eftir að ganga í og setti þau í poka og er að fara með þau á hjálpræðisherinn því ég hef ekkert sakknað þeirra. Svo braut ég alla pokana saman í pokaskúffun (hljómar kannski pínu klikk) tók alla litlu pokana sem safnast upp og maður hefur nánast engin not fyrir og setti þá í ein poka og inn í geymslu(þar fær líka Ingvi að laga til).Ég er byrjuð að skrifa jólakortin, ég ætla mér að klára það frekar senmma svo ég þurfi ekki að vera að stússast í því rétt fyrir jól því það verður örugglega nóg að gera. Ég er búin að ákveða flestar jólagjafir þannig að nú þarf bara að drýfa sig í búðir og spenda mony.
Loksins hef ég sett inn myndir af Ástralíu ævintýrinu mínu þær eru þó ekki allar komnar inn en ég er að vinna í þessu öllu saman, ég vona bara að þið sem skoðið hafið gaman af.
Ég fékk mér þessa geðveikt góðu köku i gær á bláu könunni þvílík BOMBA bounti(er það ekki anars skrifað svona) kaka og hún fer sko ofarlega á listan hjá mér, ég allavegana mæli með henni!!!
Það er eitt sem ég hef verið að fást við síðustu daga sko mig langar svo að kaupa mér kort í ræktin en ég á beint ekki fyrir því, þannig að ég hef sagt við mig jú þetta er heilsusamlegt og ekkert annað en gott um það að segja þannig að ég held að það sé bara gott og gilt að ég fái að kaupa það á visa??
Jæja nú held ég að þetta sé komið gott í bili
sælar
21. nóvember 2006 klukkan 01:19
Kristín Heiða Garðasdóttir
Kristín Heiða Garðasdóttir