14desember
Sveinki er komin í bæinn
Vá hvað þetta lýður allt svo hratt jólin eru bara að fara að koma, ég er ekki alveg að ná því en ég er samt tilbúin eða því semnæst.- Við erum búin að kaupa flest allar gjafirnar
- Ég er búin að gera tvær teg. af konfekti og viti menn það er bara gott
- Búin að gera laufabrauð
- Búin að skreyta
- Á samt eftir að taka lokaþrif, skrifa jólakort og fara í ærlagar snyrtingar frá toppi til táar ekki slæmt það!!
United er á toppnum þá er kallin ánægður með lífið og helmingi auðveldari í umgengni :/ og við skulum vona að það haldist sem lengst allaveganna fram yfir jól. Við héldum upp á þetta í dag og keyptum okkur ljósakort í abaco, við stefum á bronzlitinn
Svo er bara að vona að United vinni Hamrana hans Eggerts á sunnudaginn, því hver veit hvernig kejllinn fagnar því!
Kv. Stína fína sem er komin í jólagírinn